Greenlander er ísbjörn sem ferðaðist frá Grænu löndunum til Frogking alheimsins á ísjaka sem er nógu stór til að bera Rizzlerinn, voldugasta skrímslið í heiminum. Greenlander notaði aðeins fæturna til að ýta ísjakanum alla leið að norðurströnd Froskaheimsins með ekkert nema hatt og vindil.

The Frog King
Froskakóngurinn er konungur froskanna og verndari Frogking alheimsins. Hann fæddist stærri en bræður hans og þegar hann áttaði sig á því að hann gæti borðað þá ákvað hann að elda þá lifandi. Þegar hann var búinn að borða þá stækkaði hann. Hann gæti borðað stærri dýr. Stuttu eftir að hann át þá byrjaði hann að éta hvern einasta frosk sem að var nógu hugrakkur til að mótmæla öllu átinu. En hann stækkaði of hratt og þegar hann varð eins stór og hann gat mögulega orðið án þess að springa tók hann stóru kórónuna sem fann á botni Gullvatnsins og lýsti sjálfan sig konung með því að veifa litlu höndunum sínum. Froskabörnin líta á hann eins og föður sinn. Þeir vilja gera hann stoltan. Þeir vilja vera eins og hann og þess vegna klæðast froskarnir allir litlum gullkórónum svo þeir geti litið út eins og konungurinn þeirra.

Red (strákur)
Red er froskur sem er með sama húðlit og grænu froskaskrímslin sem að líta út eins og svín og veiða froskanna saman í hópum. Red er einnig með gul augu, alveg eins og froskaskrímslin. Hann fær nafnið sitt Red út af rauðu kórónunni sinni, sem er ástæðan fyrir því að froskarnir hlaupa ekki í burtu frá honum vegna þess að þeir eru svo hissa á því að einhver froskur myndi hafa rauða kórónu. Hvers konar froskur myndi velja rauðann lit fyrir kórónu? Það er annaðhvort litur djöfulsins eða liturinn á fallegri rós.

Mud (strákur)
Það er ekki vitað hvort Mud sé sonur Blue og Ari eða hvort að það sé Snake. Snake er líklegri kosturinn.

Tiger (Strákur)
Tiger er með sterkt bit og grófa tungu. Hann hoppar hraðar og lengri vegalengdir en hinir froskarnir. Hann borðar ekki froska því hann ólst upp með þeim og finnst gaman að hlaupa um og leika við þá, en ef hann vildi gæti hann það. Hann gæti étið þá og stundum bítur hann þá óvart, en honum líður alltaf illa ef að hann meiðir einhvern og biðst alltaf afsökunar, sérstaklega ef að klærnar hans klóra einhvern. Honum finnst gaman að bíta Sloth, froskinn sem að talar aldrei og enginn veit hvað heitir, en það er bara vegna þess að Tiger vill sjá hvort að Sloth muni einhverntímann segja eitthvað.

Rizzler
Rizzlerinn er hrikalega stór snákur og voldugasta skepnan í Froskaheiminum. Hann er með langann líkama sem að getur umkringt fjöll, tungu svo langa að hún getur snert botnin á dýpstu hellunum, og fjólublátt munnvatn sem er svo sterkt að það stöðvar öll dýr sem að finan lyktina af því, eða snerta það bara pínu lítið. Augun þeirra rúllast upp í hausinn. Þau byrja að skjálfa og missa alla stjórn á líkömunum sínum. Rizzlerinn finnst skemmtilegt að leika sér að matnum sínum, en froskarnir halda að hann sé að leyfa þeim að nota tunguna sína sem rennibraut. Enginn veit hvað Rizzlerinn er að plana.
